Toy story muffins

Toy story fígúrurnar eru algjört æði. Hér eru þær saman komnar í muffinslíki. Smjörkrem er sett á muffinskökurnar. Sykurmassi er skorinn út með hringjamóti. Kökurnar eru skreytta með sykurmassa og matartússpenna.

Fótboltamuffins

Það er alltaf skemmtilegt að bera fram litlar sætar muffins í stíl við aðal kökuna. Smjörkrem er sett á muffinsið, sykurmassahringur ofan á og muffinskakan síðan skreytt.

Golfmuffins

Það er einfalt og þægilegt að búa til golfkúlumuffins. Kökurnar eru skreyttar með smjörkremi og hvítum sykurmassa sem mótaður er með hringjaformum. Til að gera golfkúlumuffinsið raunverulegra er pikkað í sykurmassann með rúnuðu sykurmassaáhaldi.

Rokk muffins

Það getur verið skemmtilegt að skreyta nokkrar muffinskökur í stíl við aðalkökuna. Smyrjið kökurnar með smjörkremi. Fletjið út sykurmassa í mismunandi litum og skreytið.

Sveppa muffins

Sveppamuffins er skemmtilega krúttlegar! Stafamót koma að góðum notum við skreytingarnar.

Svampur Sveinsson muffins

Það eru skemmtileg fyrirbærin í hafinu. Svampur Sveinsson á marga vini og er tilvalið að setja nokkra þeirra á muffinskökur. Bakið muffins að eigin vali, setjið smjörkrem og sykurmassahring ofan á hverja muffins. Kökurnar eru skreyttar að vild.