Fótboltaskreytingar

Það er alltaf gaman að hafa skreytingar í stíl við þema afmælisins. Notið hugmyndaflugið og gerið veisluna ógleymanlega. Afmælissett og skál fæst í vefverslun mömmur.is. Útprentaða dótið er hægt að nálgast hér.

Fótboltamelónur

Girnilegir melónufótboltar. Þessi hugmynd hefur alltaf slegið í gegn í okkar veislum. Ferskt, fljótlegt og rosalega gott. Melónuboltarnir eru búnir til með melónuskeið. Fótboltabakkinn fæst í Rúmfatalagernum og kostar 199 krónur. Frábær hugmynd fyrir fótboltaveitingar, snakkið og hvað sem manni dettur í hug.

Fótboltavöllur

Einföld og rosalega góð Rice Krispies bananarjóma kaka. Uppskrift: 480 g súkkulaði 1 lítil dós síróp 150 g smjör 280 g Rice Krispies Aðferð: Súkkulaði, síróp og smjör sett í pott. Hrærið stöðugt í á meðan súkkulaðið er að bráðna. Hrærið áfram í 2 mínútur. Rice Krispies blandað saman við. Fylling: 1/2 l þeyttur rjómi … Lesa meira

Fótboltastrákur

Krúttleg kaka fyrir fótboltastráka. Hægt að leika sér með háralit, búning og gert kökuna persónulegri með uppáhaldsliði afmælisbarnsins. Kakan er búin til úr 1 ofnskúffu af súkkulaðiköku og 1 hringlagabotni (notaður til að hleypa upp maga og andliti). Fótboltastrákur er teiknaður upp á smjörpappír, kakan síðan skorin út eftir mótinu. Smjörkrem er sett á milli … Lesa meira

Liðstreyja

Krakkar sem fullorðnir hafa alltaf gaman að því að fá köku sem er eins og liðstreyja uppáhalds íþróttafélagsins. Hér höfum við útfært liðstreyju ÍA liðsins. Liðstreyja er teiknuð upp á bökunarpappír, mótið klippt út og ofnskúffustærð af súkkulaðiköku skorin út. Kakan er skorin í tvennt og smjörkrem sett á milli og utan um kökuna. Það … Lesa meira

Fótboltamarkaka

Lífleg og skemmtileg tilbreyting á fótboltaköku. Kakan er fyrri sannkallaða markaskorara. Blár sykurmassi er settur yfir smurða köku. Hvítir strimlar eru skornir út og búið til markanet úr því. Fótboltakaka sem er bökuð úr sérstöku fótboltamóti eða skál er sett í mitt markið. Fótboltinn er skreyttur með svörtu mynstri sem pikkað er í með sykurmassapikkara. … Lesa meira