Handboltabrauðterta

Brautertutreyja sem slær í gegn í veislunni. Einföld og fljótleg í framkvæmd. Salat er sett á milli brauðtertubrauða, brauðtertan er síðan skorin eftir treyjuformi. Saxið niður rauða papriku og eggjahvítu og skreytið tertuna. Til að búa til stafina eru notuð sérstök stafamót.

Handboltatreyja

Það er vel hægt að gera liðstreyjuna hjá uppáhaldsliðinu þínu með réttri fyrirmyndinni. Hér sést íslenski landsliðsbúningurinn í allri sinni dýrð. Teiknið upp treyju á smjörpappír og klippið út. Skreytið kökuna líkt og gert er á myndinni. Það gæti verið gaman að athuga númerið á uppáhalds leikmanninum.

Handboltakaka

Handboltakaka er skemmtileg tilbreyting frá ferköntuðum kökum. Boltinn er búinn til með sérstöku boltaformi eða með því að raða saman nokkrum misstórum hringjum. Raðið hringjum saman og setjið smjörkrem á milli og utan um alla kökuna þegar þið hafið skorið hana til. Hvítur sykurmassi er settur útan um kökuna og boltinn síðan skreyttur með rauðu … Lesa meira