Golfmuffins

Það er einfalt og þægilegt að búa til golfkúlumuffins. Kökurnar eru skreyttar með smjörkremi og hvítum sykurmassa sem mótaður er með hringjaformum. Til að gera golfkúlumuffinsið raunverulegra er pikkað í sykurmassann með rúnuðu sykurmassaáhaldi.

Golfkransakaka

Kransaköku golfkaka fyrir golfarann. Uppskrift: 1  kg Odense kransakökumarsipan (í bláum umbúðum) 1/2 kg sykur 2 stk eggjahvítur Marsípan er rifið niður í  hrærivélaskál með K-inu, sykrinum bætt saman við og eggjahvíturnar í lokinn. Mjög gott að geyma deigið í kæli áður en það er rúllað út. Bakað við 180° C í 8-10 mínútur Mótið … Lesa meira

Golfkaka

Golfkaka fyrir golfarann. Væri ekki gaman að hitta holu í höggi með þessari flottu golftertu. Kakan er þakin grænum sykurmassa (1/2), fígúran er gerð úr andlitslituðum, bláum og brúnum. Það getur verið gott að skera grasið út með sykurmassaskera.  Ef ekki er nægur tími til að gera golfkarlinn er hægt að kaupa tilbúna styttu í … Lesa meira