Grænmetisbolti

Fersk og góð hugmynd í veisluna! Salsasósa og grænmeti er sett á hverja tortillaköku og ostur ofan á. Nokkur lög gerð og ostur efst.

Tortilla kramarhús

1. Skinka, paprika og púrrulaukur er skorið í litla bita. Rjómaosti blandað saman við. 2. Fyllingin smurð á tortillakökur. 3. Tortillakakan er skorin í fjóra hluta. 4. Tortillabúturinn er rúllaður upp.

Torillanótur

Einfalt og svo gott að það er erfitt að hætta. Þegar búið er smyrja rjómaostablöndunni á milli tortillakakanna þá eru nótur og stjörnur mótaðar.  Þessu er síðan raðað á diskamottu sem er með svörtum röndum líkt og nótnalínur. Smyrjið tortillakökur með rjómaostablöndunni. Gott að hafa 3-4 lög af kökum. Skerið kökurnar með hníf eða formum. … Lesa meira

Töfrasproti

Það væru líklega margar stúlkurnar sem myndu vilja láta breyta sér í prinsessu úr ævintýri með þessum flotta tortillatöfrasprota. Sprotinn er búinn til með stóru stjörnuformi og upprúllaðri tortillaköku. Fylling: Rjómaostur Rifinn ostur Púrrulaukur, saxaður smátt Skinka, söxuð smátt