Einn massaður

Það er erfitt að standast svona vöðvatröll.  Hvernig væri að skella í eina álíka köku og gleða vinina með henni? Ofnskúffustærð af súkkulaðiköku er notuð í kökuna. Kakan er skorin út eftir móti sem er búið til úr smjörpappír. Vöðvar og útlínur eru búnar til úr afgöngunum. Smjörkrem er sett á milli og utan um … Lesa meira

Grýlukaka

Hver myndi slá hendinni á móti þessari frýnilegu grýluköku! Það þarf að baka 1 1/2 ofnskúffu af súkkulaðiköku ásamt tveimur skálum  fyrir brjóst. Þá er súkkulaðikakan bökuð í eldföstum skálum. Grýla er teiknuð upp á smjörpappír og klippt út. Kakan er skorin út og brjóst, haka og nef hækkuð upp með súkkulaðiköku. Kakan er skorin … Lesa meira

Fótboltaterta

Það er alltaf gaman að breyta útaf vananum og gera öðruvísi tertur. Ef hugsunin er að baka fyrir fótboltaunnandann er tilvalið að gera þessa flottu tertu. Blönduðum ávöxtum er hellt yfir neðri svampbotninn. Rjómafyllingin er smurð yfir og súkkulaðirjómanum yfir hana. Efri svampbotninn er sett á og þunnu lagi af rjóma er smurt yfir alla … Lesa meira

Fótsporakaka

Einföld og falleg kaka sem hentar vel fyrir skírn. Hringlaga súkkulaðikaka er skorin í tvennt og smurð með smjörkremi á milli og utan um kökuna. Hvítur sykurmassi er flattur út og settur yfir kökuna. kakan er skreytt með sykurmassafótsporum og litlum börnum. Hægt er að nota hvaða lit sem er í skreytingarnar.

Brúðarterta

Nýtískulega og falleg brúðarterta sem myndi sóma sér vel í hvaða brúðkaupi sem er. Vel hægt að breyta litnum á munstrinu í stíl við litina í brúðkaupinu. Kakan er búin til úr 2 stórum og þykkum hringjamótum og 2 litlum og þykkum hringjamótum. Hver hringur er skorinn í tvennt og smjörkrem sett á milli. Kökuunum … Lesa meira

Brjóstakaka 3 (18+)

Þessi kaka svíkur engan eða hvað?? Kakan er búin til úr 1 ofnskúffu af súkkulaðiköku og tveimur skálastærðum af súkkulaðiköku. Kvenmanslíkami er teiknaður upp og klipptur út. Kakan er síðan skorin eftir mótinu. Skerið kökuna í tvennt og setjið smjörkrem á milli og utan um kökuna. Brjóstin eru skorin í tvennt og smjörkrem sett á … Lesa meira