Lýsing: Gestunum er skipt í tvö lið. Annar hópurinn fer í herbergi en hinn er fyrir utan. Gestirnir sem eru fyrir utan herbergið eiga að fara í röð, hinir bíða inni. Þeir sem eru fyrir utan eiga að koma einn og einn og breyta röddinni sinni. Þeir sem eru inni eiga að giska á hver … Lesa meira

Lýsing: Allir eiga að dansa þegar tónlist er spiluð. Þegar tónlistin stoppar eiga allir að frjósa. Sá sem sést hreyfa sig er úr leik.

Hvað þarf: Nokkra stóla Tónlist Lýsing: Teljið gestina og raðið síðan jafn mörgum stólum bak í bak  og gestirnir eru. Stólarnir eiga í raun að vera einum færri en gestirnir og afmælisbarnið. Gestirnir koma sér fyrir í kringum stólana og labba af stað þegar tónlist er spiluð. Um leið og tónlistin hættir eiga allir að … Lesa meira

Hver man ekki eftir pakkaleiknum þar sem gestirnir bíða spenntir eftir að fá að rífa utan af pakkanum? Lýsing: Fyrir afmælið útbýr afmælishaldarinn pakka sem pakkaður er inn í mörg lög af dagblöðum. Gestirnir setjast saman í hring. Þegar tónlistin fer í gang þá eiga þeir  að láta pakkann ganga á milli sín. Þegar tónlistin … Lesa meira

Gögn: Sápukúlur Uppskrift af sápukúlum: 1 líter vatn. ½ dl uppþvottalögur (til dæmis Fairy) 1 msk glycerin (fæst í apótekum). Einnig hægt að hugsa þetta 1% glycerin og 5% uppþvottalögur. Með þessu móti endast sápukúlurnar lengur. Lýsing: Allir fá skál með sápukúlublöndu. Gestirnir fá allir vír sem þeir móta ýmis form úr. Vírinn er síðan … Lesa meira

Limbó

Lýsing: Tveir fullorðnir halda kústskafti á milli sín. Gestirnir eiga síðan að reyna að komast undir skaftið án þess að snerta það.  Gestirnir eiga að labba undir skaftið með því að halla sér aftur á bak. Sá vinnur sem er síðastur.