Fótsporakaka

Einföld og falleg kaka sem hentar vel fyrir skírn. Hringlaga súkkulaðikaka er skorin í tvennt og smurð með smjörkremi á milli og utan um kökuna. Hvítur sykurmassi er flattur út og settur yfir kökuna. kakan er skreytt með sykurmassafótsporum og litlum börnum. Hægt er að nota hvaða lit sem er í skreytingarnar.

Nafnaleikur

Þessi leikur gengur út á að fá gestina til að giska hvað barnið á að heita. Um leið og gestirnir koma fá þeir auðan miða sem þeir eiga að skrifa á hvað þeir halda að barnið eigi að heita. Miðunum er safnað saman í skál/kassa og geymt. Síðar í veislunni er lesið upp af miðunum … Lesa meira

Barnakaka

Krúttleg  og öðruvísi barnakaka sem passar vel fyrir skírnarveisluna. Tveir hrinlaga súkkulaðibotnar eru notaðir í þessa útfærslu. Maginn og andlitið er hækkað upp með súkkulaðiköku. Kökurnar eru skornar í tvennt og smurðar með smjörkremi á milli og utan um kökuna. Lítið nef er búið til með litlum kökubút og smjörkrem sett yfir það. Andlitslitaður sykurmassi … Lesa meira

Skírnartertan

Skírnartertur eiga að ljóma af hreinleika og fegurð en fátt er yndislegra en skírn barns. Skírnartertur eru oftar en ekki hafðar  í ljósum og fallegum litum og verða  blár og bleikur þá oft fyrir  valinu. Kaka í laginu eins og koddi hefur löngum þótt falleg skírnarkaka en hana er auðvelt að móta. Það er um … Lesa meira