Fiðrildakaka (3)

Einföld og falleg fiðrildakaka. Hringlaga súkkulaðikaka er skorin í tvennt, smjörkrem sett á milli og utan um kökuna. Sykurmassi er settur yfir og kakan síðan skreytt með fiðrildum og blómum. Silfurlitaðar sykurkúlur eru settar í miðjuna á blómunum.

Fiðrildamuffins

Fiðrildamuffins skreyta veisluborðið með ævintýraljóma. Þessar muffinskökur eru einfaldar í framkvæmd. Kemur einnig mjög vel út að gera blómamuffins. Hringurinn fyrir grunninn er mótaður með hringjaformi. Blómin og fiðrildin eru búin til með þar til gerðum formum.

Fiðrildakaka (2)

Fiðrildakaka hentar hvaða aldri sem er. Það er hægt að hafa mildari liti þegar um yngri börn eru að ræða en skærari og dekkri þegar eldri krakkar eiga í hlut. Fiðrildi vekja alltaf kátínu og er sérstaklega gaman að búa til mynstrið á fiðrildinu. Það er tilvalið að nota hringjamót og sykurmassaskera til að móta … Lesa meira

Fiðrildakaka

Þessi kaka var bökuð fyrir 1 árs prinsessu. Þar sem hún átti afmæli um sumar þótti tilvalið að gera fiðrildaköku. Bindivír er notaður fyrir fálmara og silfurkúlur notaðar fyrir doppur. Fiðrildi er teiknað upp á smjörpappír. Kakan er síðan skorin út eftir mótinu. Til að búa til fiðrildið er notuð 1 ofnskúffa af súkkulaðiköku. Smjörkrem … Lesa meira

Fiðrildabrauðterta

Falleg og skemmtileg útfærsla á brauðtertu. Fiðrilda brauðterta hentar vel í hvers kyns ævintýra eða sumarveislu. Fiðrildið er skreytt með brytjaðri skinku, papriku (gulri) og dökkum vínberjum sem skorin eru í tvennt.