Kisusmákökur

Súkkulaðibitakökur slá í gegn í kisuafmælinu. Mótaðu kisuandlit úr smákökudeigi, bakaðu og skreyttu síðan með kóngabráð. Kökurnar eiga eftir að klárast áður en þær komast á borðið.

Hefðarkattarmuffins

Það er voðalega gaman að gera litlar sætar muffinskökur fyrir litlar skvísur. Bakið muffinskökur. Fletjið út sykurmassa og skerið út hringi með hringformum. Til að fá eyrun og kinnaranar upphleyptar á kisukökunum eru hornin af sykurpúða klippt og sett á réttan stað. Sykurmassahringurinn er settur á muffinskökurnar og þær síðan skreyttar á ýmsan máta. Það hentar … Lesa meira

Hefðarkattarkaka

Hefðarkötturinn er voðalega sætur og hentar vel í afmælisveislu hjá litlum kisuelskendum. Prentið eða klippið út mót af hefðarkisunni. Leggið á kökubotn og skerið eftir. Til að gera nefið upphleypt er afgangur af súkkulaðikökunni notaður. Setjið bútinn þar sem nefið á að vera. Smyrjið kökuna með smjörkremi og sléttið vel. Búið til hvítan sykurmassa, fletjið út … Lesa meira