Hello Kitty andlit

Krúttleg Hello Kitty andlitskaka. Kakan er gerð úr 1 hringlaga súkkulaðikökubotni, ásamt súkkulaðikökubúti. Kemur einnig mjög vel út að baka ofnskúffu af súkkulaðiköku og móta Hello Kitty á hana. Kakan er skorin í tvenn og smjörkrem sett á milli og utan um hana. Hvítur sykurmassi er flattur út og settur yfir hana. Augu og nef … Lesa meira

Kisusmákökur

Súkkulaðibitakökur slá í gegn í kisuafmælinu. Mótaðu kisuandlit úr smákökudeigi, bakaðu og skreyttu síðan með kóngabráð. Kökurnar eiga eftir að klárast áður en þær komast á borðið.

Hello Kitty muffins

Ef þú ert að leita að einfaldri hugmynd fyrir skvísuafmælið þá eru þessar kisumuffins málið. Muffinskakan er smurð með smjörkremi. Sykurmassinn er flattur út og hringir mótaðir úr honum með hringjamóti. Hornin af sykurpúða eru klippt af og sett sem eyru. Sykurmassahringurinn er settur á muffinskökuna og hún síðan skreytt með tilbúnum túpuglassúri og sykurmassa. … Lesa meira

Hello Kitty andlit

Einföld og falleg hugmynd. Það er gaman segja frá því að þetta er ein af fyrstu sykurmassakökunum sem mömmur.is hafa gert. Það má í raun útfæra þessa köku á ýmsan máta. Hún er frekar stór og má því vel minnka hana. Þessi kaka er einföld og hentar vel fyrir byrjendur í kökuskreytingum. Skerið út kisuandlit og … Lesa meira

Hello Kitty pítsa

Kisupítsa í pítsuafmælið. Skemmtleg tilbreyting frá hinni hefðbundnu pítsu. Pítsublandan hentar vel í þessa hugmynd. Paprika og skinka notuð til að skreyta andlitið.

Hello Kitty brauðterta

Þessi brauðterta er ein sú krúttlegasta í safninu enda er Hello Kitty algjört æði. Brauðtertubrauð eru smurð með salati, Hello Kitty mótuð á smjörpappír og mótið klippt út. Skerið brauðtertuna eftir forminu og skreytið kökuna með skinku, papriku og eggjahvítu.  Svört ólífa er notuð fyrir augu og paprika fyrir nef. Slaufan er búin til úr … Lesa meira