Kóngulóapítsa

Skemmtileg útfærsla á pepparonipítsu! Pepparóni er skorið til og raðað á pítsuna líkt og kóngulóavefur. Kónguló er búin til með svartri Ólífu. Ostur er settur undir og aðeins yfir pítsuna.

Muffinsauga

Þau eru þreytuleg þessi augu en voðalega góð á bragðið! Hægt er að nota hvaða muffinsuppskrift sem þykir góð. Muffinskökurnar eru smurðar með þunnulagi af smjörkremi og síðan skreyttar með hvítum og svörtum sykurmassa. Rauðan í auganu er lituð með matartússlit.

Nornaskreytingar

Dularfullar verur, búningar, veitingar og skreytingar er það sem setur svip sinn á nornaveisluna.

Nornamuffins

Krúttlegar nornamuffins sem gaman er að gæða sér á.

Nornahattur

Nornahatturinn var gerður í tilefni af nornaveislu sem haldin var fyrir unglingahóp. Unglingarnir voru stórhrifnir af hattinum enda sómaði hann sér vel á miðju veisluborðinu. Hatturinn er búinn til úr nokkrum misstórum súkkulaðikökuhringjum með smjörkremi á milli. Smjörkremið er einnig sett utan á kökuna til að festa svartan sykurmassann á hattinn. Til að þekja hattinn … Lesa meira

Melónuheili

Heili er kannski ekki efst á matseðlinum en þegar búið er að útfæra hann sem vatnsmelónu er hann virkilega góður. Útfærslan á vatnsmelónunni er einfaldari en hún lítur út fyrir að vera. Vatnsmelónuheilinn var eitt það vinsælasta í nornaveislunni.