Blómaterta

Það getur komið skemmtilega út að taka munstur af servíettu sem notuð er í veislunni og gera köku sem passar við. Þessi kaka var einmitt hönnuð fyrir 30 ára afmæli. Munstrið er tekið út úr fallegri servíettu. Ofnskúffa af súkkulaðiköku er skorin út eins og blóm. Kakan er skorin í tvenn og smurð með smjörkremi … Lesa meira

Túlípanakaka

Túlípaninn hefur löngum þótt falleg blómategund. Hann kemur vel út á köku. Súkkulaðikaka er skorin í tvennt og smjörkrem sett á milli og utan um. Sykuramssi er flattur út og settur yfir kökuna. Kakan er skreytt með túlípanamóti og munsturskeri notaður til að setja utan um kökuna.

Hjartalegblómakaka

Það er alltaf fallegt að bera fram köku með blómum. Hjörtu setja skemmtilegan svip á kökuna. Hringlaga súkkulaðikaka er skorin í tvennt og smjörkrem sett á milli og utan um kökuna. Sykurmassi er flattur út og settur yfir kökuna. Kakan er skreytt með blómum og hjörtum. Borðinn í kringum kökuna er búinn til með munsturskera.

Blómakaka (3)

Falleg blómakaka sem er mjög einföld í framkvæmd. Hringlaga súkkulaðikaka er skorin í tvennt, smjörkrem sett á milli og utan um kökuna. Hvítur sykurmassi er settur yfir og kakan síðan skreytt með sykurmassablómum. Borðinn í kringum kökuna er gerður með munsturskera.

Blómakaka (2)

Falleg blómakaka sem er mjög einföld í framkvæmd. Hringlaga súkkulaðikaka er skorin í tvennt, smjörkrem sett á milli og utan um kökuna. Hvítur sykurmassi er settur yfir og kakan síðan skreytt með sykurmassablómum og munsturskera.

Blómleg brauðterta

Þessi minnir nú á málverk. Hvað finnst þér? Þessi brauðterta var gerð til að fagna sumrinu. Einföld og falleg. Blómastilkurinn er búinn til úr gúrkulengju og blómin úr mislitum paprikum. Til að móta blómin voru notuð sérstök blómaform.