Turtleskaka

Einfalt mót sem hægt er að klippa út eftir mynd. Skerið ofnskúffustærð af súkkulaðiköku í laginu eins og sýnt er á myndunum. Fletjið út grænan sykurmassa og setjið hann yfir kökuna. Mótið andlit og augnabandið með þeim lit sem hentar.

Rokk muffins

Það getur verið skemmtilegt að skreyta nokkrar muffinskökur í stíl við aðalkökuna. Smyrjið kökurnar með smjörkremi. Fletjið út sykurmassa í mismunandi litum og skreytið.

Gítarnagla brauðterta

Brauðterta sem líkist gítarnögl og hentar vel í rokkveisluna. Setjið salat á milli nokkra laga af brauðtertubrauði, Skreytið kökuna með saxaðri eggjahvítu og grænni papriku.

Rokk gítar

Sannir rokkarar slá ekki hendinni á móti flottri rokk gítarköku. Gítarinn er mótaður á smjörpappír eftir mynd eða venjulegum gítar. Mótið er klippt út og kakan skorin eftir því. Smjörkremi er smurt á milli og utan um kökuna. Sykurmassinn er lagður yfir kökuna í tvennu lagi. Fyrst er hvíti sykurmassinn settur yfir og síðan svarti … Lesa meira

Rokkbassi

Þessi bassi rokkar! Hvaða rokkari sem er myndi verða ánægður með köku sem þessa. Til að átta sig á hvernig bassinn á að líta út er gott að hafa sýnishorn fyrir framan sig. Bassamótið er frekar einfalt og tekur frekar stuttan tíma að vinna kökuna.  Lakkrísreimar voru notaðar til að þekja hálsinn á bassanum og … Lesa meira

Nótnabrauðréttur

Það er hægt að lífga upp á hefðbundinn brauðrétt með litlu skrauti sem tengist þema veislunnar. Hérna voru nótur myndaðar úr svörtum ólífum. Nótnalínurnar voru myndaðar með rauðri papriku. Í þennan rétt má nota hvaða brauðréttauppskrift sem er.