Faratækjakaka

Einföld og skemmtileg hugmynd fyrir bíla og faratækjastráka! Súkkulaðikaka er skorin í tvennt, smjörkrem sett á milli og utan um. Sykurmassi er flattur út og settur yfir kökuna. Kakan er skreytt með farartækjamótum og hringjamótum. Röndin í kringum kökuna er búin til með sykurmassabyssu.

Dekkjasnúðar

Snúðar sem minna á dekk og því ekki að skreyta þá sem slíka. Bræddu súkkulaði og settu á snúðana. Snúðarnir eru síðan skreyttir með hvítu súkkulaði. Þá gæti verið sniðugt að nota skreytingarpennann.

Bílakaka

Sett inn af mömmur.is í Bílar - (3 Skoðanir)
Bílakaka

Brumm, brumm er bara að bruna af stað í kökubaksturinn. Sportbíll er verkefni dagsins. Ofnskúffa af súkkulaðiköku er notuð í þessa hugmynd. Mótið bílinn og skerið kökuna eftir því. Kökuafgangarnir eru notaðir til að hækka bílinn upp. Skerið kökuna í sundur og setjið smjökrem á milli. Bíllinn er dippaður eins og sést á myndunum. Skref … Lesa meira

Bílabraut

Það væri ekki amalegt að keyra um á þessari bílabraut. Hér er á ferðinni einföld en mjög flott bílabraut sem heillar alla akstursáhugamenn. Það er vel hægt að ráða stærðinni en ef brautin á að vera eins stór og á myndinni þarf að nota 4 ofnskúffur. Smjörkrem er sett á milli hringjanna og utan um … Lesa meira

Bílaveisla