Bubbi byggir hefur heillað marga í gegnum árin. Hér er hann mættur í kökulíki. Þessi kaka er mjög stór og tekur þó nokkurn tíma ef hún er gerð í sömu stærð og á myndinni. Það má vel minnka kökna og einfalda. Í þessa köku fóru tvær ofnskúffur og ein skál af súkkulaðiköku. Það þarf að … Lesa meira
Hér er venjuleg peruterta sett í skemmtilegan vinnubúning.Svampbotn og marengsbotn ofan á er notaður. Það má vel nota jurtarjóma á milli botnanna. Það kemur vel út enda er jurtarjóminn mun hvítari en þessi venjulegi. Það blotnar ekki eins mikið í svampbotninum með jurtarjóma og því betra að bleyta vel í svampbotninum.
Það þarf ekki alltaf að gera flókna köku til að slá í gegn. Þessi skálaréttur er margprófaður af ýmsum aðilum og þykir alltaf jafn góður. Mjög fljótlegur og þá sérstaklega ef þú átt marengsbotn í geymslu. Nú er hann kominn í nýjan búning, skálin farin og rétturinn settur í leikfangavinnubíl sem klæddur er með álpappír. … Lesa meira






