Marengsandlit

Algjör snilld að geta gert andlit úr marengsbotni. Einfalt og fljótlegt í framkvæmd. Rjómafylling er sett á milli tveggja marengsbotna. Efri botninn er síðan skreyttur með súkkulaði. Til að móta hárið þarf að klippa útlínur að hári. Hægt að stækka mynd af Diego og taka eftir á smjörpappír. Smjörpappírinn er síðan klipptur út og súkkulaðilínur … Lesa meira

Dýramuffins

Það er hægt að gera hin ýmsu skógardýr þegar kemur að Diego afmæli.Það tók stuttan tíma að skreyta þessar muffins. Það er hægt að nota smjörkrem sem grunn og kóngabráð til að skreyta. Einnig gott að nota sykurmassa sem grunn. Það er tilvalið að nota muffisskreytisettið okkar í skreytingarnar.

Diego skreytingar

Það er rosalega gaman að halda regnskógar afmæli. Maður ímyndar sér hvernig er að lifa í frumskóginum og vinnur út frá því. Það var ekki erfitt að finna skreytingar sem passa vel við dýravininn Diego. Litir sem hentar í þetta þema er grænt, appelsínugult og blátt. Skreytingarnar voru því hafðar í þessum litum. Afmælið var … Lesa meira

Diego andlit

Það er alltaf hægt að líkja efti andliti teiknimyndapersóna. Dýravinurinn Díego er þar engin undantekning. Kakan er mjög einföld og fljótleg í framkvæmd. Smjörkrem er sett á milli 2 hringlaga botna og utan um þá. Andlitslitaður sykurmassi er flattur út og settur utan um kökuna. Mótið hárið með bræddu súkkulaði. Augu, munnur og nef eru búin … Lesa meira

Diego 3D kaka

Tignarleg og flott kaka sem gaman er að gera. Það tekur aðeins lengri tíma að gera kökur sem eru sitjandi. Í þessa köku fóru 2 ofnskúffur  og 1 hringur af súkkulaðiköku. Smjörkrem er sett á milli laganna og utan um alla kökuna. Sykurmassi: Dökkblár, ljósblár, hvítur, gulur, brúnn, rauður, andlitslitaður og svartur. Aðferð: Mótið fætur … Lesa meira

Brauðtertubíll

Diego brauðtertubíll Í þessa brauðtertu voru notuð 2  brauðterturúllubrauð og skinkusalat. Til að skreyta bílinn var appelsínugul paprika, gúrka, vínber og litaðir tannstönglar notaðir Leikfangakarl var notaður til að setja í bílinn.