Svampur Sveinsson muffins

Það eru skemmtileg fyrirbærin í hafinu. Svampur Sveinsson á marga vini og er tilvalið að setja nokkra þeirra á muffinskökur. Bakið muffins að eigin vali, setjið smjörkrem og sykurmassahring ofan á hverja muffins. Kökurnar eru skreyttar að vild.

Svampur Sveinsson

Það er óhætt að segja að sjávarstemning fylgi hinum vingjarnlega Svampi Sveinssyni. Hann hefur heillað marga með skemmtilegum uppátækjum og góðmennsku. Undirbúðu þig fyrir ævintýri  hafsins og haltu upp á blauta afmælisveislu. Svampur Sveinsson kaka er einföld í framkvæmd. Ofnskúffustærð af súkkulaðiköku er notuð sem grunnur. Kakan er skorin til á hliðunum líkt og svampur. … Lesa meira