Kóngulóapítsa

Skemmtileg útfærsla á pepparonipítsu! Pepparóni er skorið til og raðað á pítsuna líkt og kóngulóavefur. Kónguló er búin til með svartri Ólífu. Ostur er settur undir og aðeins yfir pítsuna.

Spidermanmuffins

Það setur mikinn svip á veisluborðið að hafa nokkrar muffins í stíl við aðalkökuna. Setjið smjörkrem á muffinsið. Mótið sykurmassahring með hringjamóti. Leggið sykurmassann yfir og skreytið andlitið með svörtum túpulit. Augun eru búin til úr sykurmassa.

Spidermankaka

Kóngulóamaðurinn er hetja sem margur drengurinn dáir. Einfaldleikinn var látinn ráða för og sykurmassanum sleppt. Skerið kökuna og setjið smjörkrem yfir hana. Ef andlitið á að vera upphleypt þarf að hafa tvo botna og setja smjörkrem á milli. Andlitið er skreytt líkt og kóngulóavefur með svörtum túpulit. Það gæti hentað vel að gera svarta kóngabráð go … Lesa meira