Apple tölvukaka

Nú geta appletölvuunnendur glaðst því nú er hægt að gera einfalda en flotta útfærslu af appletölvu. Hvítur sykurmassi (3/4) er settur yfir ofnskúffustærð af köku. Myndið línu í kringum kökuna til að líkja eftir lokaðri tölvu. Apple merkið er skorið út og sett öfugt á kökuna. Takkar eru búnir til með gráaum eða svörtum sykurmassa.

Tölvukaka

Væri ekki smart að fá tölvuköku í afmælisgjöf? Setjið krem ofan á botnana. Sykurmassinn er síðan settur yfir. Lyklaborðið var gert daginn áður og takkarnir geymdir í plastíláti í kæli yfiri nóttina. Hver takki var handskrifaður með matartússlit. Myndin á tölvunni er prentuð út af netinu og plöstuð. Silfurduft gæti komið vel út á þessari … Lesa meira