Skýjamarengs

Tveir marengsbotnar notaðir og rjómafylling á milli. Rúnið tertuna til og þannig fæst fallegt skýjamót

Gíraffagulrótarkaka

Gíraffinn er sérstakur í mínum huga þar sem hann er fyrsta sykurmassakakan sem ég gerði. Hann heppnaðist bara nokkuð vel. Byrjaðu á því að teikna mynd af gíraffa á smjörpappír og klipptu hann út. Skerið síðan kökuna út eftir mótinu. Gulur sykurmassi er flattur út og settur yfir kökuna. Mótið mismunandi brúna flekki á gíraffann. … Lesa meira

Krókódílabrauðterta

Væri ekki gaman að hafa einn krókódíl á veisluborðinu?  Kannski ekki lifandi en sem brauðterta væri það mjög gott. Setjið salat á milli brauðtertubrauða. Krókódíll er teiknaður upp á smjörpappír og klippur út. Leggið mótið á smurða brauðtertuna og skerið út. Krókódíllinn er skreyttur með smátt skorinni gúrku og grænni papriku. Augun eru gerð úr … Lesa meira

Regnbogaterta

Rjómaterta í líflegum litum eru alltaf skemmtilegar á veisluborðið. Tertan er búin til úr 1 svampotni og 1 marengbotni.  Svampbotninn er bleyttur með safa úr blönduðum ávöxtum, ávextirnir eru settir ofan á og rjómi og muldar makkarónur þar yfir. Marengsbotninn er settur ofan á og rjómi yfir. Regnboginn er skreyttur með jarðarberjum, kíwí, bláberjum og … Lesa meira

Örkin hans Nóa skreytingar

Skreytingar í Örkina hans Nóa þema eru fjölbreyttar og skemmtilegar. Komdu fyrir fulltaf leikfangadýrum og settu hér og þar um veisluborðið. Gætir verið með bláan dúk sem tákn fyrir Nóaflóðið. Ef þú átt leikfangaörk er tilvalið að setja snakk eða popp í Örkina og leyfa fólki að borða úr Örkinni. Þá þarf að setja álpappír … Lesa meira

Örkin hans Nóa kaka

Nói fékk það hlutverk að smíða bát sem hann gat notað þegar flóðið mikla kæmi. Hér höfum við hjá mömmur.is skapað litla eftirlíkingu af Örkinni. Setjið saman þrjú lög af súkkulaðibotnum og setjið smjörkrem á milli. Örkin er sett saman eins og sýnt er á myndunum og hjúpsúkkulaði sett utan um. Stráin á húsinu eru … Lesa meira