Skemmtilegur leikur sem lífgar upp á veisluna. Brúðguminn er fenginn til að koma framfyrir háborðið og setjast á stól. Brúðurinn stendur fyrir framan stólinn sem hann situr á. Veislustjóri eða annar kemur og tekur brúðgumann úr öðrum sokknum og klippir hann í tvennt. Um leið segir veislustjórinn að nú hafi brúðurin 20 ár til að … Lesa meira

Það er hægt að grípa í þennan leik hvenær sem er meðan á brúðkaupsveislunni stendur. Þessi leikur gengur út á að fá brúðurina eða brúðgumann til að roðna. Áður en brúðhjónin mæta í veisluna þarf að dreifa nokkrum lyklum hér og þar um salinn. Ef leikurinn er fyrir brúðurina þarf að finna karlmenn til að … Lesa meira

Þessi leikur hefur verið mjög vinsæll í gegnum árin. Hann er þannig að í hvert skipti sem einhver lætur klingja í glasinu sínu eiga brúðhjónin að standa upp á stól og kyssast.

Allir gestir fá hjartalaga miða sem þeir eiga að skrifa eitthvað fallegt til brúðhjónanna á. Miðunum er síðan safnað saman og hengdir á tré sem er í salnum. Miðana geta brúðhjónin síðan skoðað eftir veisluna.

Í þessum leik fá allir gestirnir blöðru og miða. Hver gestur skrifar eitthvað eitt sem hann myndi vilja gera fyrir brúðhjónin og nafnið sitt aftan á miðann. Síðan er blásið í blöðruna, miðinn settur inn í og bundið fyrir. Þá eru brúðhjónin fengin til að fara út á mitt gólf og öllum blöðrunum komið fyrir … Lesa meira

Þessi leikur gengur út á að spyrja  brúðhjónin ýmissa vandræðalegra spurninga. Brúðhjónin eru látin sitja á stól, bak í bak. Hvort um sig er með Barbie í einni höndinni og Ken í hinni. Þegar brúðhjónin eru tilbúin byrjar spurningaflóðið. Brúðhjónin rétta upp barbie ef spurningin á við brúðurina og Ken ef hún á við brúðgumann. … Lesa meira