Doppukaka

Það kemur alltaf vel út að raða saman mismunandi hringjum á tertu. Ljós grunnur og litaðar doppur komar sérstaklega vel út á þessari fallegu tertu. Hringirnir eru gerðir með sykurmassamótum.

Fiðrildakaka

Það þarf ekki alltaf að vera flókið að gera fallegar tertur. Þessi terta er skreytt með fiðrildum, litlum blómum og sykurkúlum. Fermingarstytturnar eru gerðar af listakonunni Hrefnu Aradóttur en hún tálgar styttur eftir mynd af fermingarbarninu.

Apple tölvukaka

Nú geta appletölvuunnendur glaðst því nú er hægt að gera einfalda en flotta útfærslu af appletölvu. Hvítur sykurmassi (3/4) er settur yfir ofnskúffustærð af köku. Myndið línu í kringum kökuna til að líkja eftir lokaðri tölvu. Apple merkið er skorið út og sett öfugt á kökuna. Takkar eru búnir til með gráaum eða svörtum sykurmassa.

Blómaterta

Þessi terta er sérstök að því leytinu til að hún er ekki skorin beint. Gerið smá halla á kökuna og hún fær skemmtilegt lag á sig. Raðið mismunandi blómum hér og þar á tertuna og vitið til, hún á eftir að vekja mikla lukku í veislunni. Til að móta kökuna eins og á þessari mynd … Lesa meira