Moki brauðterta

Varúð vinnuvél á svæðinu!! Setjið salat á milli brauðtertubrauða og mótið vinnubílinn. Tertan er skreytt með fínt saxaðri papriku, vínberjum er komið fyrir á pallinum og svartar ólífur notaðar fyrir augu og inn í dekkin. Eggjahvíta er notuð í rúðurnar og tómatar fyrir dekk.

Bubbi byggir

Bubbi byggir hefur heillað marga í gegnum árin. Hér er hann mættur í kökulíki. Þessi kaka er mjög stór og tekur þó nokkurn tíma ef hún er gerð í sömu stærð og á myndinni. Það má vel minnka kökna og einfalda. Í þessa köku fóru tvær ofnskúffur og ein skál af súkkulaðiköku. Það þarf að … Lesa meira