Þegar skreyta á brauðtertu er um að gera að leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín. Notaðu litadýrð náttúrunnar til að ná því fram sem þú ætlar þér. Hér getur þú fengið hugmynd hvernig þú nýtir ávexti, grænmeti og matvæli til skreytinga.

Skinkusalat Uppskrift: 5 egg 1 skinkupakki Majones eins og þarf 1 msk tómatsósa Aðferð: Sjóðið egg, kælið og takið skurninn utan af þeim. Skerið eggin með eggjaskera og setjið í skál. Skerið skinkuna í litla bita og bætið út í. Hrærið majonesi eins og þarf og setjið að lokum 1 msk af tómatsósu í salatið.

Upplýsingar 250 g rækjur 4 egg Smá sítrónusafi Majónes eftir þörfum Þeir sem vilja geta bætt pipar eða sítrónupipar út í. Aðferð: Sjóðið eggin og skerið í eggjaskera. Látið leka af rækjunum. Blandið öllu saman og setjið á brauðtertubrauð.

Uppskrift: 1 dós túnfiskur í vatni 1/2 laukur smátt saxaður 4 egg Majónes 1 msk tómatsósa Aðferð: Sjóðið eggin og skerið í eggjaskera. Blandið hráefninu saman og setjið á brauðtertubrauðið.

2 dósir túnfiskur í vatni. 1/2 l ab-mjólk majónes eftir þörfum. 1/2 lauk smátt saxaðann. Seson all eftir þörfum. 3 msk tómatsósa Aðferð: Sýrður rjómi búinn til úr ab-mjólk. Ab-mjólkinni er þá hellt í kaffipoka eða eldhúspappír og sýjuð í gegn. Gott að láta hana sýjast yfir nóttu. Allt blandað saman og salatið sett á … Lesa meira

Brauðterta. Þessi er einföld og klikkar aldrei! Fer oft í bakarí og læt þá skera samlokabrauð fyrir mig. Einnig hægt að kaupa frosið rúllutertubrauð út í búð. Skinku brauðterta 1 brauðtertubrauð 5 soðin egg 1 skinkubréf Majones sett þannig að salatið verði blautt. 1-2 msk tómatsósa Aðferð: Eggin soðin, kæld og skorin í eggjaskera. Skinkan skorin … Lesa meira