Blómaterta

Það getur komið skemmtilega út að taka munstur af servíettu sem notuð er í veislunni og gera köku sem passar við. Þessi kaka var einmitt hönnuð fyrir 30 ára afmæli. Munstrið er tekið út úr fallegri servíettu. Ofnskúffa af súkkulaðiköku er skorin út eins og blóm. Kakan er skorin í tvenn og smurð með smjörkremi … Lesa meira

Skvísutaska

Þessi skvísutaska er tilvalin fyrir skvísuafmælið! Kakan er búin til með 1 ofnskúffu af kókós, súkkulaðiköku. Kakan er skorin í  tvennt og bananakaramellusmjörkrem er sett á milli. Kakan er síðan skorin í tvennt og smjörkrem sett á kökuna og hinn búturinn settur á. Kakan er hlaðin upp og rúnuð með beittum hníf efst. Smjörkremið er … Lesa meira

Prinsessukrútt

Þetta prinsessukrútt er algjört æði, svo krúttleg og sæt! Það væri hvaða prinessa sem er tilbúin að fá svona köku í afmælinu sínu. Teiknið upp mót af prinsessu á smjörpappír og klippið út. Mótið þarf að passa á ofnskúffustærð af súkkulaðiköku þar sem sú stærð er notuð. Skerið út prinsessuna og skerið síðan í tvennt. … Lesa meira

Doppudraumur

Það er alltaf gaman að skreyta og bera fram doppóttarkökur. Súkkulaðikaka er skorin í tvennt og smjörkrem smurt á milli og utan um kökuna. Sykurmassi er flattur út og hann settur yfir kökuna. Kakan er skreytt með mismunandi hringjamótum. Þetta getur ekki klikkað!

Lopapeysukaka

Lopapeysukaka er skemmtileg hugmynd fyrir prjónafólk. Lopapeysa er teiknuð upp á smjörpappír og mótið klippt út. Mótið er lagt á ofnskúffustærð af súkkulaðiköku og mótið skorið út. Kakan er skorin í tvennt og smjörkrem sett á milli. Hvítur sykurmassi er flattur út og lagður yfir kökuna. Kakan er skreytt með svörtu og grænu munstri. Það … Lesa meira

Fiðrildakaka (3)

Einföld og falleg fiðrildakaka. Hringlaga súkkulaðikaka er skorin í tvennt, smjörkrem sett á milli og utan um kökuna. Sykurmassi er settur yfir og kakan síðan skreytt með fiðrildum og blómum. Silfurlitaðar sykurkúlur eru settar í miðjuna á blómunum.