Sjóræningjakrútt

Þessi sjóræningi er hið mesta krútt og hugmyndin fengið af krúttlegu sjóræningjasetti. Sjóræninginn er teiknaður upp á smjörpappír og skorinn út úr 1 1/2 ofnskúffu súkklaðiköku. Smjörkrem er sett á milli og utan um sjóræningjann. Andlitslitaður (1) sykurmassi er settur utan um alla kökuna.  Það er gert til að auðveldara verði að skreyta hana. Peysan … Lesa meira

Faratækjakaka

Einföld og skemmtileg hugmynd fyrir bíla og faratækjastráka! Súkkulaðikaka er skorin í tvennt, smjörkrem sett á milli og utan um. Sykurmassi er flattur út og settur yfir kökuna. Kakan er skreytt með farartækjamótum og hringjamótum. Röndin í kringum kökuna er búin til með sykurmassabyssu.

Risueðlukaka

Skemmtileg risaeðlukaka sem ekkert mál er að framkvæma. Súkkulaðikaka er skorin í tvennt, smjörkrem er sett á milli og utan um kökuna. Sykurmassi er flattur út og settur yfir kökuna. Risaeðlur eru mótaðar með sykurmassamótum úr mislitum sykurmassa. Gróðurinn er búinn til með laufblaðamótum.

Hauskúpukaka

Einföld og skemmtileg hugmynd í sjóræningjaafmælið! Súkkulaðikaka er skorin í tvennt og smjörkrem sett á milli og utan um kökuna. Grár sykurmassi er flattur út og steinamunstur búið til með munsturmottu. Massinn er lagður yfir kökuna og kakan skreytt með svörtum borða og hvítri hausúkpu.

Gröfuskreytingar

Vinnumaður á eftir að vera ánægður með gröfuþema. Það er skemmtilegt að skreyta fyrir gröfu og vinnuvélaþema en hægt er að fara margar leiðir í skreytingunum.

Sjóræningjaandlit

Það er ekki erfitt að finna hugmyndir fyrir sjóræningjaþema. Þessi hugmynd er einstaklega auðveld og hentar vel byrjendum sem lengra komum kökuskreytum. Hringlaga súkkulaðibotn er notaður í þessa hugmynd. Kakan er skorin í tvennt og smurð með smjörkremi á milli og utan um. Andlitslitaður sykurmassi er flattur út og settur yfir kökuna. Sjóræningjaklúturinn er settur … Lesa meira