Blómaterta

Það getur komið skemmtilega út að taka munstur af servíettu sem notuð er í veislunni og gera köku sem passar við. Þessi kaka var einmitt hönnuð fyrir 30 ára afmæli. Munstrið er tekið út úr fallegri servíettu. Ofnskúffa af súkkulaðiköku er skorin út eins og blóm. Kakan er skorin í tvenn og smurð með smjörkremi … Lesa meira

Svínakaka

Það er fátt betra en að gæða sér á ekta íslenska rjómatertu, þessi svíkur engan! Tveir hringlaga svampbotnar eru bakaðir, blandaðir ávextir sett á neðri botninn og rjómi þar ofan á. Efri botninn er síðan settur ofan á og rjómi utan um. Bleikur sykurmassi er flattur út og settur á kökuna. Nefið er búið til … Lesa meira

Bangsamarengs

Það er hægt að gera ýmislegt úr marengsköku eins og sést á þessari köku. 2 Bangsamót eru teiknuð upp á smjörpappír. Marengshræra gerð tilbúin og sett á mótin. Fjólublár matarlitur er settur út í lítinn hluta af marengshærurnni og blandað varlega saman við. Fjólubláu blöndunni er komið fyrir á þeim stöðum sem bangsinn á að … Lesa meira

Rex brauðterta

Hún brosir á móti manni þessi krúttlega brauðterta! Skemmtileg hugmynd sem einfalt er að framkvæma. Rex er teiknaður upp á smjörpappír. Formið er klippt út og fest á smurða brauðtertu. Formið er skorið út og síðan er tertan skreytt með smátt söxuðu gúrkuhýði. Hýðið er skorið af með ostaskera og skorið smátt. Augun eru búin … Lesa meira

Bósa ljósárkaka

Út fyrir endimörk alheimsins er rétta setningin yfir þessa fallegu Bósa köku. Þetta er kaka fyrir sannkallaða Bósaljósár aðdáendur. Kakan er búin til úr 1 og 1/2 ofnskúffu af súkkulaðiköku. Bósi ljósár er teiknaður upp á smjörpappír, síðan er formið klippt út. Kakan er skorin út eftir forminu. Kakan er skorin í tvennt og smjörkrem … Lesa meira

Toy story muffins

Toy story fígúrurnar eru algjört æði. Hér eru þær saman komnar í muffinslíki. Smjörkrem er sett á muffinskökurnar. Sykurmassi er skorinn út með hringjamóti. Kökurnar eru skreytta með sykurmassa og matartússpenna.