Vatnsdeigsbollur

Jul 12, 2010 by     4 Skoðanir    Skrifað undir: Bolludagurinn, vatnsdeigsbollur, Vatnsdeigsbollur
Uppskrift fyrir ca. 20 stk
  • 4 dl vatn
  • 160 g smjör eða smjörlíki
  • ¼ tsk salt
  • 200 g Kornax hveiti
  • 5 stk egg
Aðferð:
  1. Hitið vatn og smjörlíki saman í potti að suðu (gott að bræða smjörlíkið örlítið áður en vatnið er sett út í) bætið þá hveiti og salti saman við og slökkvið á hellunni.
  2. Hrærið  með sleif þar til deigið verður slétt og fellt
  3. Blandan er sett í hrærivélaskál og hrærð með þeytara þar til hún  kólnar að mestu.
  4. Eggin eru sett út í, eitt og eitt í einu og hrært vel í  á milli. Hrært þar til hræran verður jöfn og góð.
  5. Þetta er sett á bökunarpappír (á bökunarplötu)  með t.d. matskeið. Gott að hafa gott bil á milli.
  6. Þetta er síðan bakað við 200°C í 25 mín við blástur og 200° í 25-30 mín við yfir og undirhita. Það má ekki opna ofninn meðan á bakstri stendur. Passið að hafa nægilegt bil á milli svo bollurnar geti blásið út.
  7. Sulta, þeyttur rjómi, búðingur, ís, ferskir ávextir eða hvað sem fólki þykir best  er sett á milli.  Glassúr eða súkkulaði er sett ofan á.

4 Skoðanir + Skrá Skoðun

  • Er ekki lyftiduft?

  • Það er ekki lyftiduft!

  • Þessi uppskrift er alveg perfekt, takk fyrir að deila henni með okkur :)

  • Þetta er eithvað skrýtið…. deigið er verulega fljótandi á það að vera svoleiðis ?

Viltu segja þína skoðun?

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Flokkar