Bleik blómleg veisluterta
Falleg veisluterta getur gert mikið fyrir veisluborðið, þessi er falleg og hefur ákveðinn ævintýraljóma yfir sér
Það er hægt að velja hvað tertubotna sem er til að gera þessa fallegu tertu. Hér eru notaðir svamptertubotnar með jarðarberjarjómafyllingu. Kakan er hjúpuð með sykurmassa sem flattur er út á blómamunsturmottu. Kakan er skreytt með sykurmassablómum, perlum og glimmerspreyi.
Uppskriftina má finna hér:























Skrifað undir: 


mjög falleg kaka. Hvar finn ég uppskriftina af botninum?
Hér er uppskriftin, kemur kannski aðeðins og seint en hér er hún: http://mommur.is/archives/8792
Hvernig nota ég munsturmottuna, flet ég fyrst út massann og svo í restina á mottuna?
Það er hægt að fletja massann fyrst út og leggja munsturmottuna á og þrýsta munstrinu í. Það má einnig fletja beint út á munsturmottunni en þannig fæst meira og dýpra munstur.
Falleg kaka og falleg fermingarskvísan, til lukku