Skoða

Brjóstakaka 4 (18+)

Brjóstakaka

Brjóstakaka

Þessi er sjóðandiheit

Kakan er búin til úr 1 1/2 ofnskúffu af súkkulaðiköku og tveimur skálastærðum af súkkulaðiköku. Skálarnar er hægt að búa til með sérstöku boltaformi en einnig er hægt að setja nokkra hringi saman og rúna.  Kvenmanslíkami er teiknaður upp  á smjörpappír og klipptur út. Kakan er síðan skorin eftir mótinu. Skerið kökuna í tvennt og setjið smjörkrem á milli og utan um kökuna. Brjóstin eru skorin í tvennt og smjörkrem sett á milli. Smjörkremið er smurt vel yfir kökuna og slétt vel úr. Andlitslitaður sykurmassi er settur yfir kökuna. Það þarf að passa að hafa nógu langan og breiðan massa þar sem brjóstin taka mikið til sín. Það hjálpar mikið til að hafa góða sykurmassamottu, við mælum með The mat sem er 76X76 cm að stærð. Þá er gott að leggja massann í brjóstaskoruna og leggja hann síðan yfir.  Nærfötin eru sniðin til og skorin með sykuramssaskera. Nærfötin eru sniðin til og lögð yfir kökuna. Gott að nota málband.  Geirvörtur eru mótaðar með brúnum sykurmassa og nærfataböndin eru búin til með munsturskera. Nærfötin eru skreytt með litlum sykurmassahjörtum.  Það kemur vel út að setja nafn á líkamann, á þessari mynd eru funky style stafamót notuð.

Brjóstakaka

Brjóstakaka

Brjóstakaka

Brjóstakaka

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts