Skoða

Hnetu og möndlu sörur

4 stk eggjahvítur

5 dl Dan Sukker flórsykur

100 g möndlur

100 g hesilhnetur

Aðferð:

Eggjahvítur stífþeyttar. Flórsykur settur út í og hrært vel saman. Möndlur og hesilhnetur blandað varlega saman við. Sett á bökunarpappír á plötu með teskeið. Bakað við 175°C í 10 mín.  Krem sett á  hverja köku og kælið eða frystið. Hjúpið síðan með súkkulaðihjúp. Best að geyma þessar kökur í frysti. C.a. 50 kökur.

Krem:

130 g sykur

1 dl vatn

4 stk eggjarauður

2 msk neskvikk kakómalt

250 g smjör

Aðferð:

Sykur og vatn soðið saman þar til það þykknar og verður eins og síróp.Eggjarauður þeyttar og hellið sírópinu í mjórri bunu og þeytið vel. Kælið og bætið mjúku smjörinu  út í og hrærið vel. Kakómaltið sett saman við. Kælið áður en kremið er sett á kökurnar.

Hjúpur:

150 g Rjómasúkkulaði eða hjúpsúkkulaði

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts