Skoða

Star Warssverð

Þessi hugmynd hitti beint í mark hjá Star Wars afmælisstráknum mínum!

Uppskrift:

  • 480 g súkkulaði (ég nota oftast til helminga Nóa Síríus mjólkursúkkulaði og suðusúkkulaði)
  • 1 lítil dós síróp
  • 150 g smjör
  • 280 g Rice Krispies


Aðferð: Súkkulaði, síróp og smjör sett í pott. Hrærið stöðugt í á meðan súkkulaðið er að bráðna. Hrærið áfram í 2 mínútur. Rice Krispies blandað saman við og hrært þar til allt er blandað vel saman. Mótið sverðin á bökunarpappír og látið kólna.

Það getur ekki orðið mikið einfaldara að henda í eina Rice Krispies uppskrift og móta síðan á bökunarpappa það mót sem þú ætlar að gera.  Í þessi tilfelli voru gerð Star Warssverð.

Þegar ég var búin að móta sverðin þá leyfði ég þeim að kólna en þá var hægt að lita þau.  Ég notaði borðanlegt litarsprey en hún gerði þessa fallegu áferð á sverðunum.  Einnig hægt að lita súkkulaði og hella fyrir sverðin.

6 comments
  1. sniðug og auðveld lausn, kröfur hjá mínum eru akkúrat Star Wars og held ég nú að sverðin verði allavega á borðinu.. glæsilegt

  2. Algjört snilld…… þetta á ég eftir að gera og segja frá þesari hugmynd ;D

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts