Skoða

Brauðskálar – brauðkollur

Fyrir nokkrum árum var ég að leita að sniðugum forréttum sem kæmu vel út í veislum sem og við hátíðleg tilefni.

Þá uppgötvaði ég brauðskálarnar.

Ég notaði uppskrift sem ég er búin að nota lengi, upphaflega komin frá snillingnum Jamie Oliver. Uppskriftin hefur þó eitthvað breyst hjá mér þar sem ég bæti stundum og breyti uppskriftunum örlítið.

Í þessari færslu langar mig til að kenna ykkur að gera brauðskálar en það er auðveldara en það lítur út fyrir að vera. Algjör snilld að bera fram nýbakað brauð og setja góða súpu í skálina.

Uppskrift fyrir 4 brauðskálar:

625 ml volgt vatn

30 g pressuger eða 21 g þurrgerger ( ég nota pressuger sem ég kaupi eftir vigt í næsta bakaríi)

2 msk sykur  eða hunang

20 – 30 g salt

1 kg Kornax hveiti (blá hveitið þar sem það inniheldur meira prótein og því betra í gerbakstur)

Hvítlaukslögur: Er ekki með nákvæma uppskrift þar sem ég geri þetta meira eftir tilfinningunni:

Olívuolía ca. 2 dl

6 stk Pressaðir Hvítlauksgeirar (elska að hafa mikið af þeim 🙂 notaði lika alltaf tilbúið hvítlauksmauk frá mC Cormick en það fæst í Hagkaup

2 tsk sítrónusafi

Örlítið af pipar

Örlítið Maltonsalt

2-3 tsk Ítölsk hvítlauksblanda frá Pottagöldrum

Nokkur chillifræ

Aðferð:

Vatn, ger og sykur sett saman í skál. Saltið sett saman við ásamt hveitinu.  Hrært saman og síðan hnoðað. Látið lyfta sér í ca. 1 klst eða þar til deigið hefur tvöfaldað sig. Brauðskálar mótaðar fást ca. 4 skálar úr uppskriftinni, þær látnar lyfta sér í ca. 10-15 mínútur. Hvítlaukslögurinn settur ofan á hverja brauðskálina.  Bakað í ca. 30 mínútur við 200° C

Skref fyrir skref:

Allt sett í skál og hrært saman. Deigið hnoaðað í smá tíma og síðan látið lyfta sér í ca. 1 klst.

Stórar brauðskálar mótaðar og þær látnar lyfta sér í ca. 10-15 mínútur

Hvítlauksblandan búin til og látin standa meðan deigið lyftir sér

Hvítlauksolíunni penslað yfir bolurnar rétt áður en þær eru settar í ofninn

Brauðskálin tilbúin

Hringur skorinn í skáina og brauðið tekið úr og sett til hliðar (notað með súpunni)

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts