Skoða

dásemdar kökupinnar

Það eru orð að sönnu að ég fæ aldrei nóg af því að skreyta kökupinna.  Brúna súkkulaðið finnst mér alltaf svo heillandi en ég nota Nóa Síríus dökka súkkulaðihjúpdropa. Skrautið kemur einstaklega vel út á pinnunum. Í Þessu tilfelli notaði ég kökuskraut með jarðarberja og vanillubragði en það er dásamlegt að finna lyktina af pinnunum þegar búið er að sáldra skrautinu yfir svo ekki sé talað um þegar maður smakkar á þeim. Til að setja punktinn yfir i-ið þá gerði ég nokkur sykurmassaskraut með sílikonmóti og litaði með perlulitum.

 

11 comments
  1. oohh ég elska síðuna hjá Bakerella, get skoðað hana aftur og aftur 🙂
    það er líka lúmskt gaman að gera svona pinna 🙂

  2. Úú bakerella, hún er æði! Ferlega gaman að föndrast við svona pops, gerði drauga um daginn, komu skemmtilega út 🙂

  3. Ótrúlega spennandi kökupinnar…er að fara að purfa í fyrstaskitpið og hlakka mjög mikið til ekki væri verra að fá gjafabréf til að geta keypt sér eitthvað fallega áður en maður gerir frumraunina í kökupinnagerð 😉

  4. Langar svo mikið til að prófa þetta! Verst hvað er langt í næsta barnaafmæli “)

  5. Ummm miki svakalega eru þeir girnilegir. Þetta verð ég að prufa, snilldarhugmynd 😉

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts