Skoða

Dekkjasnúðar

Uppskrift:

  • 300 g smjörlíki (brætt)
  • 5     dl vatn
  • 5     dl mjólk
  • 2      pakkar þurrger (ca. 23 gr) eða pressuger (ca. 60 gr).
  • 1      tsk salt
  • 3      dl sykur
  • 3      tsk kardimommuduft einnig hægt að nota kardimommudropa
  • ca. 2 kg. hveiti

Aðferð: Vatn og mjólk hituð að 27 gráðum (ef nota á pressuger). Gerið  blandað saman við og leyst upp í smá stund. Bræddu smjörlíki bætt saman við ásamt þurrefnunum.   Deigið látið lyfta sér í ca 1 – 1 1/2 klst. Deigið flatt út og fyllingin smurð á. Deigið rúllað upp og skorið í hæfilega stóra bita. Gott að láta þá lyfta sér í smá stund eftir að þeir eru settir á plötuna. Bakist við 220° í 10-15 mín.

Fylling:
Brætt Smjörlíki

Kanilsykur (búinn til úr sykri og kanil)

Aðferð: Bræddu smjörlíki er smurt yfir útflatt deigið með pensli og kanilsykri er síðan stráð yfir.

Ofan á er sett  1 plata  ljóst opal súkkulaði og 1 plata dökkt opal súkkulaði. Þetta er brætt saman og smá jurtafeiti sett saman við má líka setja örlitla matarolíu. Verður mýkra og glansar fallega. Til að skreyta með stöfum bræði ég hvítt súkkulaði og skreyti með skreyingarpenna.

2 comments
Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts