Skoða

Heimsins besta gulrótakaka

Gulrótakaka er eitthvað sem ég hef alltaf verið  skotin í. Þessi uppskrift er algjört æði, allir sem smökkuðu voru stórhrifnir.

Ekki er verra að kakan sómaði sér einstaklega vel á nýju garðhúsgögnunum sem ég var að kaupa mér 🙂

Uppskrift:
3 egg

180 ml  mjólk með 1 tsk af edik eða sítórnusafa

180 ml olía

340 g sykur

2 tsk vanilludropar

2 tsk kanill

1/4 tsk salt

250 g hveiti

2 tsk matarsódi

250 g rifnar gulrætur (eða 2 bollar)

125 g kókósmjöl

125 g pekanhnetur mjög fínt skornar
250 gr ananaskurl með safanum (smátt skorinn).

Aðferð: Hráefnin sett í þrjár skálar sbr. leiðbeiningar. 

1. Hveiti, matarsódi, salt og kanill sett saman í skál og skálin sett til hliðar

2. Egg, mjólk, vanilludropar, egg  og sykur sett í skál, hrært vel og sett til hliðar

3. Gulrætur, ananas, pekanhnetur og kókósmjöl sett í skál til hliðar.

4. Öllum skálunum blandað saman, sett í smurt mót

5. Bakað við 175 gráður í 50- 60 mínútur ( ef þessi uppskrift er sett í tvö mót t.d. 28 cm þá eru þetta 45 mínútur)

Krem:

500 g rjómaostur

400 g flórsykur

1 msk smjör

1 tsk vanilludropar

1 msk rjómi

Aðferð: Öllu hrært vel saman og síðan sett á kökuna.

Hér sést vel hversu blaut og fín þessi kaka er, ananasinn toppar þetta alveg.

Sykurmassaskrautið gerir mikið, bjó til tvær gulrætur og notaði síðan afganginn af massanum til að rífa með rifjárni.

 

1 comment
Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts