Það er vel hægt að gera bollakökur úr kökumixi en þá er deiginu skipt niður í smærri form. Kökurnar eru síðan skreyttar að vild. Hér er skemmtileg útfærsla að hátíðarlegum bollakökum.
Ingredients
Bollakökur 24 stk
- 1 pakki Betty Crocker cluten free Djöflakökumix
- 4 stk egg - soðin
- 125 ml olía
- 250 ml vatn
- 100 g bismark mjólkursúkkulaði
Krem
- 1 Dós Betty Crocker rjómaostakrem/ vanillukrem
- 1 Rauður matarlitur
Skreyting
- 100 g Odense marsipan - hvítt útflatt
- 1 Fíngert kökuskraut
Instructions
Aðferð:
- Djöflakökumixið er sett í skál ásamt eggjum, olíu og vatni. Hrært vel í ca. 3 mínútur.
- Deigið er sett í bollakökuform, c.a. hálft formið.
- Bismark súkkulaðið er brytjað í litla bita og sáldrað yfir hverja köku.
- Bakað við 180°C gráður (yfir og undirhita) í um 22 mínútur eða þar til þær eru bakaðar í gegn.
- Þegar bollakökurnar hafa kólnað er kreminu sprautað með 1M stjörnustúti. Það kemur vel út að setja örlítið af rauðum matarlit í brúnirnar á sprautupokanum en þá koma skemmtilegar renndur á kremið.
- Marsípan snjókorn eru búin til úr útflöttu marsípani en það er hægt að kaupa tilbúið út í búð. Snjókornamót er notað til að búa til munstrið.
- Hvítu kökuskrauti er sáldrað fyrir kökurnar.