Skoða

Piparkökuglassúr

Piparkökuglassúr er krem sem harðnar fljótt og heldur sér þegar búið er að sprauta því.

Kremið er notað til að skreyta piparkökur og aðrar smákökur og einnig til að halda piparkökuhúsum saman.

Hver hefur sína uppskrift en innihaldið er yfirleitt eggjahvíta, flórsykur og sítrónusafi.

Uppskrift:

  • 2 stórar eggjahvítur
  • 2 2/3 bolli sigtaður flórsykur
  • Nokkrir dropar af sítrónusafa
  • Gel matarlitur

Aðferð:

1. Eggjahvítum og 1 1/3 bolli flórsykrinum er hrært saman með t.d. gaffli.

2. Restinni af flórsykrinum er þeytt saman við  með handþeytara þar til blandan er orðin stífþeytt. Stundum þarf að bæta flórsykri saman við til að gera blönduna þykkari.

3. Nokkrum dropum af sítrónusafa er hrært saman við.

4. Ef þú ætlar að hafa kremið með lit er matarliturinn settur saman við.

Ef þér er illa við að nota hráar  eggjahvítur þá er hægt að hita blönduna í örbylgjuofni í ca. 30-40 sek.  Blandan má ekki verða heitari en 80°C.

Það er mjög gott ráð að setja raka tusku yfir skálina sem glassúrinn er geymd í.

Nú er hægt að sprauta blöndinni á smákökurnar, piparkökurhúsið eða það sem þú ætlar að nota það í. Hægt að gera með skreytingarpenna, plastpoka með örlitlu gati eða kramarhúsi.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts