Gómsæt súkkulaðikaka klikkar ekki og ég skal segja ykkur að þessi er algjör draumur. Silkimjúk með mildu smjörkremi á milli og marssúkkulaðisósu yfir.
Uppskrift:
80 g púðursykur
270 g sykur
180 g smjör
4 stk egg
2 tsk vanilludropar
1 1/2 tsk matarsódi
3/4 tsk lyftiduft
1/4 tsk salt
300 g hveiti
40 g kakó
180 ml mjólk
100 g sýrður rjómi
1-2 marsstykki – brytjuð niður (má sleppa)
Marskrem:
200 g smjör – linað
350 g flórsykur
4 msk kakó
2 stk marssúkkulaði – brædd (ásamt 2 msk rjóma og 1 msk smjör)
2 msk síróp
2 tsk vanilludropar
Marsganache:
2 stk mars
1 msk smjör
5 msk rjómi
Aðferð:
Smjöri, púðursykri og sykri er þeytt saman. Eggjunum blandað saman við, eitt og eitt í einu og hrært á milli.
Vanilludropunum er blandað saman við.
Hveiti, lyftiduft, matarsódi, salt og kakó er sett saman í skál og blandað saman við ásamt mjólk og sýrðum rjóma.
Deigið er hrært varlega saman og marsbitunum blandað saman við í restina.
Deigið er sett í smurð bökunarmót ca. 23 cm. Kakan er bökuð í 30-35 mínútur við 160°C hita (blástur) eða 180°C (yfir og undirhita).
Krem:
Marssúkkulaði er brytjað í litla búta, sett í pott ásamt smjöri og rjóma. Hitað yfir vatnsbaði þar til allt er bráðnað. Leyft að kólna í smá stund.
Smjör, flórsykur, kakó, vanilludropar og síróp er sett í hrærivélaskál og þeytt vel saman. Í lokinn er brædda marsið blandað saman við.
Kremið er sett á milli kökubotnanna þegar þeir hafa kólnað og utan um kökuna.
Marsganache er hellt yfir kökuna og hún að lokum skreytt með marsbitum og jarðarberjum.
- Category: Uppskriftir