Skoða

Súkkulaðikaka með marsbitum og marskremi

Marskaka

Gómsæt súkkulaðikaka klikkar ekki og ég skal segja ykkur að þessi er algjör draumur. Silkimjúk með mildu smjörkremi á milli og marssúkkulaðisósu yfir.

Uppskrift: 

80 g púðursykur

270 g sykur

180 g smjör

4 stk egg

2 tsk vanilludropar

1 1/2 tsk matarsódi

3/4 tsk lyftiduft

1/4 tsk salt

300 g  hveiti

40 g kakó

180 ml mjólk

100 g  sýrður rjómi

1-2 marsstykki – brytjuð niður (má sleppa)

Marskrem: 

200 g smjör – linað

350 g flórsykur

4 msk kakó

2 stk marssúkkulaði – brædd (ásamt 2 msk rjóma og 1 msk smjör)

2 msk síróp

2 tsk vanilludropar

Marsganache:

2 stk mars

1 msk smjör

5 msk rjómi

Aðferð: 

Smjöri, púðursykri og sykri er þeytt saman.  Eggjunum blandað saman við, eitt og eitt í einu og hrært á milli.

Vanilludropunum er blandað saman við.

Hveiti, lyftiduft, matarsódi, salt og kakó er sett saman í skál og blandað saman við ásamt mjólk og sýrðum rjóma.

Deigið er hrært varlega saman og marsbitunum blandað saman við í restina.

Deigið er sett í smurð bökunarmót ca. 23 cm. Kakan er bökuð í 30-35 mínútur við 160°C hita (blástur) eða 180°C (yfir og undirhita).

Krem: 

Marssúkkulaði er brytjað í litla búta, sett í pott ásamt smjöri og rjóma.  Hitað yfir vatnsbaði þar til allt er bráðnað.   Leyft að kólna í smá stund.

Smjör, flórsykur, kakó, vanilludropar og síróp er sett í hrærivélaskál og þeytt vel saman. Í lokinn er brædda marsið blandað saman við.

Kremið er sett á milli kökubotnanna þegar þeir hafa kólnað og utan um kökuna.

Marsganache er hellt yfir kökuna og hún að lokum skreytt með marsbitum og jarðarberjum.

 

 

 

Ingredients

This recipe has no ingredients

Instructions

This recipe has no instructions