Bakaðar í muffinssjárni sem fæst í Elko
Uppskrift:
1/2 bolli smjör (125 g)
1/2 bolli kakó
1 1/4 bolli Dan Sukker púðursykur
1 1/4 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 tsk salt
2 stór egg
1 dós jarðarberja jógurt
2 tsk vanilludropar
2 tsk edik
3/4 bolli mjólkursúkkulaði.
Það er mjög gott að byrja að hita muffinsjárnið áður en deigið er búið til.
Aðferð:
1. Bræðið smjörið og setjið til hliðar meðan annað hráefni er undirbúið.
2. Þeytið egg og púðursykur vel saman með pískara.
3. Þurrefnin eru sett saman í skál: hveiti, kakó, lyftiduft, matarsódi og salt.
4. Vökvinn er settur í aðra skál: jógúrt, smjör og vanilludropar. Edikið er sett síðast út í.
5. Blandið öllu saman og bætið súkkulaðibitum í blönduna í lokinn.
6. Setjið 1 msk í hvert muffinshólf og bakið í ca. 15 mínútur.
Skref fyrir skref:
frábært til að baka muffins !
Er samt ekki hægt að baka þær í venjulegum ofni :)?
Auðvitað 🙂
Hæ 🙂
Er ekki hægt að fá gröm á hráefnin í stað bolla-tal? Ég er ekki vön að baka, og veit þess vegna ekki hve stór þessi bolli á að vera :S
Kveðja
Fjóla Björk
Einhversstaðar sá ég að 1 bolli = 2,5 dl