Ég er ein af þeim og kannski þú líka sem elskar súkkulaði. Ég hef lengi verið að leita að hinni fullkomnu súkkulaðimuffins þegar ég datt inn á þessa dásamlegu uppskrift. Upprunalega uppskriftin er án súkkulaðibita en ég stóðst ekki freistinguna að setja nokkra 70% Súkkulaðibita í deigið.
Súkkulaðimuffins með súkkulaðibitum:
235 g hveiti
1 msk lyftiduft
1/8 tsk salt
125 ml soðið vatn
45 g kakó
125 g smjör (við stofuhita)
250 g Dan Sukker sykur
1 tsk vanilludropar
2 stór egg (við stofuhita)
180 ml Nýmjólk (við stofuhita)
Aðferð:
1. Hveiti, salt og lyftiduft sett saman í skál, sett til hliðar.
2. Vatn soðið og kakó sett út í og hrært vel, látið kólna í smá stund.
3. Sykur, smjör og vanilludropar þeytt vel þar til blandan er létt og ljós. Eggin sett út í eitt og eitt. Blandan hrærð í 3 mínútur.
4. Hveitiblöndunni blandað saman við og mjólkinni blandað saman í tveimur skömmtum. Hrærið varlega.
5. Kakóblöndunni hellt varlega saman við. Þeytið örlítið.
6. Blandan er sett í form og bökuð við 175 gráður yfir og undirhiti í ca. 20-25 mínútur.
Marskrem fyrir bollakökur
80 g súkkulaði, brytjað
1 Marsstykki
250 g flórsykur
250 g smjör (við stofuhita)
2 tsk Vanilludropar
60 ml rjómi (við stofuhita) (má sleppa)
Aðferð:
Brytjaða súkkulaðið ásamt marsbitum er brætt yfir vatnsbaði, látið kólna. Flórsykur, smjör og vanilludropar þeytt vel saman þar til létt og ljóst. Bræddu súkkulaðinu síðan hellt saman við smjörblönduna ásamt rjómanum. Hrært vel saman.
Litlu frænku finnst ekki leiðinlegt að fá að vera með stóru frænku að baka!!
Deigið í allri sinni dýrð!!
Ákvað að prófa þessi fáguðu form.
Ísskeiðin er ómissandi þegar ég er að setja deigið í formin, þannig fæ ég alltaf jafn stórar kökur og ekkert fyrir út fyrir 🙂
Sykurmassi og súkkulaðiskraut klikkar ekki!!
yummy!!!!!!!!! i luv chocolate!!!!
þarf að vera nýmjólk? má ekki vera léttmjólk eða jafnvel undanrenna?
Þú getur notað þá mjólk sem þú átt til!
á rjóminn í kreminu að vera þeyttur?