Ertu kannski að fá gesti í kvöld? Þessi salsadýfa er algjör snilld – þægileg, einföld og rosa góð.
Sá þessa hugmynd á netinu fyrir nokkru og ákvað að prófa.
Þegar ég kemst í góða dýfu fyrir Nachosflögur þá er ekki aftur snúið.
Hér eru leiðbeiningar fyrir þessa flottu hugmynd að salsadýfu í glasi.
Leiðbeiningar
Fer allt eftir því hvað á að gera mikið svo ekki er tilgreint magn aðeins hráefnin. Þá má vel leika sér með hvert lag og gera það sem þér finnst best.
1. Salsadýfa sem er sett neðst í botinn og á milli laga.
2. Guacamolesósa sett ofan á
3. Ostasósa – sett þar yfir
4. Sýrður rjómi
5. Salsasósan sett yfir ásamt rifnum osti.
Nachosflöga til skrauts ásamt skornu grænmeti t.d. gúrku, tómötum og paprikum.
Borið fram með nachosflögum.