– færslan er unnin í samstarfi við Flying Tiger á Íslandi og Betty Crocker á Íslandi-
Það er þessi tími ársins, Hrekkjavakan nálgast. Það er um að gera að búa til skemmtilegar hugmyndir til að njóta þegar kemur að sjálfum deginum. Hér er á ferðinni einfaldar bollakökur bakaðar með Betty Crocker djöflakökumixi og skreyttar með tilbúnu kremi og skemmtilegu nammi sem fæst í verslunum Flying Tiger.
Bollakökumótin eru fjólublá og svört en þar kemur tengingin við Hrekkjavökuna sjálfa.
Hrekkjavöruskreytingar á borði eru einning frá Flying Tiger.
Bollakökurnar eru skreyttar með sprautustútnum 1M en hann hentar mjög vel til að búa til rósamunstur.
Það kemur vel út að mylja smá köku yfir bollakökurnar.
Þetta er snilldar hlaup sem kemur skemmtilega út á bollakökunum.