Gómsætir snúðar eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég elska snúða og geta ekki staðist þá þegar þeir eru á boðstólum. Mér finnst mikilvægt að hafa þá búsna og pattaralega en þar skiptir máli að leyfa deiginu að hefa sig nóg. Pistasíumassinn gerir mikið fyrir snúðana, þeir verða svolítið fínni. Það er vel hægt að bjóða þessa dýrindis snúða í kaffinu, veislunni og yfir hátíðanar.
Passa að hafa deigið ekki of þunnt. Betra að hafa það í þykkara lagi þegar gera á þykka snúða.
Deigið er smurt með bræddu smjöri.
Kanilsykurinn er alltaf jafn góður.
Dásamlegi pistasíumassinn frá Odense
Fínt að sprauta lengju af pistasíumassa hjá brúninni þar sem byrjað er að rúlla en þannig kemur massinn í miðjuna á snúðunum.
Deigið er síðan rúllað upp. Vel hægt að setja meira af pistasíumassanum.
Skornir í hæfilega þykka bita.
* Þessi færsla er unnin í samstarfi við Odense