Það kom mér virkilega á óvart hvað þessi uppskrift kom vel út. Hún kom mér á óvart þar sem ég notaði ISO4 olíu í stað smjörs.
Litu fullkomlega út og brögðuðust mjög vel. Þessa uppskrift er vert að prófa.
Uppskrift:
250 ml vatn
125 ml ISO4 olía
150 g hveiti
1/8 tsk salt
1 tsk sykur (má sleppa)
4 egg
Aðferð:
1. Vatn, olía, salt og sykur er sett saman í pott og hitað að suðu. Potturinn er tekinn af hellunni og hveitinu hrært með sleif þar til deigið er orðið slétt.
2. Blandan er kæld örlítið í hrærivélinni ca. 5 mínútur.
3. Eggjunum bætt saman við, einu og einu í senn.
4. Deigið er sett í sprautupoka og því sprautað á plötu klædda bökunarpappír. Passa að hafa bil á milli.
5. Bollurnar eru bakaðar í ca. 35 mínútur við 200 °C hita. Passa að opna ofninn ekki meðan á bökun stendur.
6. Njóttu með rjóma, sultu eða þeirri fyllingu sem þér þykir best.
Hugmynd að fyllingu:
Jarðarberjaís settur á milli, karamellusósa og jarðarberjasulta á botninn.
Ofan á:
Súkkulaði