Yndislegar gular makrónur með súkkulaðiperlukurli frá Nóa Síríus.
LOVE IT
Uppskriftin er einföld:
1 Makrónumix (fæst hjá mömmur.is)
50 ml heitt vatn (um 50 gráður)
Gulur gel matarlitur
Súkkulaðiperlur frá Nóa síríus
Aðferð:
Vatnið hitað og síðan blandað saman við Makrónumixið, þeytt með handþeytara í ca. 4 mínútur. Gelmatarlitnum blandað saman við og blöndunni síðan sprautað á bökurmottu eða pappír. Bakað í 17 minútur við ca. 160 gráða hita.
Krem:
120 g súkkulaði t.d. 56% Nóa Síríus
1/2 bolli rjómi
2 msk smjör
Aðferð: Allt sett í pott og hrært vel í á meðan. Látið kóla í kæli í ca. 30 mínútur.
Alltaf gott að vera með réttu áhöldin. Makrónumotta, rúnaður stútur og sprautupoki er málið.
Fínt að nota hitamæli til að vera með rétt hitastig á vatninu.
Blandan og vatnið hrært í 4 mínútur, liturinn settur saman við.
Magnús vinur stráksins míns langaði svo að smakka eina, auðvitað fékk hana það og fengu makrónurnar góða dóma hjá honum. Um að gera að prófa.