Það var svo sannarlega áskorun þegar ein besta vinkona mín bað okkur í mömmur.is að gera brúðartertuna fyrir sig.
Eftir miklar vangaveltur og vinnu var þetta útkoman, erum mjög ánægðar með útkomuna, smellpassaði við fallegu brúðhjónin.
Kakan er gerð úr þremur misstórum súkkulaðibotnum. Smjörkrem á milli og utan um og síðan var hvítur sykurmassi notaður til að hjúpa kökurnar. Massinn var síðan perluhúðaður með perludufti. Skreytingarnar eru gerðar með rósamótum, rósaborða (sílikonmót), snjókornaskera og silfurlituðum perlum.