Fyrir þessi jól fengum við þessi frábæru sílikonmót. Við hjá mömmur.is erum miklir aðdáendur silikonmóta þó einkum fyrir þær sakir að þau eru einstaklega þægileg í notkun og móta fallegt sílikonskraut. Ekki er síðra þegar búið er að móta skrautið en þá tekur litunarferlið við,velja falleg perluduft eða matarlitaduft til að lita með. Fíngerðir penslar eru nauðsynlegir en til að mála nota ég duftin ásamt isopropanol en það fæst í apótekunum.